Umhverfisstofnun: vill fresta réttaráhrifum vegna úrskurða

Umhverfisstofnun gerir athugasemd við úrskurði úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála sem kveðnir voru upp í gær

Fram kemur að farið verður yfir mögulegar lausnir í samráði við Umhverfisráðuneytið en að öðru leyti liggja ekki fyrir viðbrögð við úrskurðunum. Þó er ákveðið að stofnunin mælir með því að réttaráhrifum verði frestað meðan málið verður rekið fyrir dómstólum, enda telur Umhverfisstofnun að leyfið hafi verið veitt í samræmi við lög og reglur.

Í tilkynningu frá Umhverfisstofnun segir eftirfarandi:

„Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur fellt úr gildi ákvarðanir Umhverfisstofnunar um útgáfu starfsleyfa fyrir rekstraraðilana Arctic Sea Farm hf. og Fjarðalax hf. í Patreks- og Tálknafirði. Áður hafði úrskurðarnefnd fellt út gildi ákvarðanir Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfa til sömu aðila á grundvelli sömu röksemda.

Úrskurðarnefnd telur að álit Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum framkvæmdanna geti ekki verið grundvöllur leyfisveitinga vegna skorts á umfjöllun um valkosti. Ekki liggur fyrir á þessari stundu hvernig brugðist verður við niðurstöðum úrskurðanna en farið verður yfir mögulegar lausnir með umhverfis- og auðlindaráðuneytinu. Seiði hafa einungis verið sett út á einu eldissvæði og umfang því lítið enn sem komið er.

Umhverfisstofnun hefur í umsögn sinni til úrskurðarnefndar, vegna beiðni rekstraraðila um frestun réttaráhrifa úrskurðanna, mælt með því að réttaráhrifum verði frestað á meðan málin verði til meðferðar hjá dómstólum. Byggir sú afstaða á því að stofnunin telur að útgáfa starfsleyfa hafi verið í samræmi við lög og reglur.

Tekur stofnunin ekki undir röksemdir úrskurðarnefndarinnar um að álit Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum hafi ekki verið lögmætur grundvöllur fyrir ákvörðun um veitingu leyfa til framkvæmda. Einnig skal bent á að úrskurðarnefndin leitaði ekki umsagnar Skipulagsstofnunar í rannsókn sinni á málinu áður en hún kvað upp úrskurð sinn sem lýsti annmörkum á umhverfismatsferlinu. Stofnunin telur því að úrskurðarnefndin hafi ekki haft mikilvæg sjónarmið til grundvallar áður en úrskurðir féllu, einkum um raunhæfa valkosti.

Úrskurðarnefnd telur að skyldur leyfisveitenda nái ekki einvörðungu til þess að taka afstöðu til þeirra efnislegu niðurstaða sem í áliti Skipulagsstofnunar felast heldur einnig til þess að kanna hvort aðrir annmarkar geti verið til staðar, s.s. að skort hafi á umfjöllun um valkosti.

Umhverfisstofnun telur að í því felist krafa um formlegt og efnislegt endurmat leyfisveitanda á áliti Skipulagsstofnunar. Úrskurðurinn sýnir þörf á að skýrt verði nánar í lögum hvert sé hlutverk leyfisveitenda hvað varðar ábyrgð á áliti um mat á umhverfisáhrifum.

Mikilvægt er að árétta að leyfin eru ógilt á grundvelli þess að umhverfismati hafi verið áfátt en ekki að skilyrði í starfsleyfi um mengunarvarnir hafi verið ófullnægjandi.“

 

DEILA