Nýtt hlutafélag, Puntstrá ehf, samvinnufélag, stofnað í Auðkúluhreppi

Frá Karlsstöðum í Auðkúluhreppi. Það er greinilega búið að rafvæða hjá honum Kalla gamla! Ljósm. H. S.

Sú saga flýgur nú um Vestfirsku Alpana, að stofnað hafi verið nýtt félag í Auðkúluhreppi og segja sumir kunnugir að ekki veiti nú af. Er um að ræða bæði hlutafélag og samvinnufélag og heitir Puntstrá ehf.

Tilgangur félagsins: Að græða sem mest.

Tilgangi sínum hyggst félagið ná með því að kaupa og selja fasteignir, leigja þær út á svörtu og með almennri lána- og okurstarfsemi. Þar mun að sjálfsögðu verða gætt meðalhófs samkv. stjórnarskránni. Selja puntstrá og annan gróður af túnum hér vestra til höfuðborgarinnar og annarra landshluta. Einnig markaðsetning erlendis, einkum í Danmörku. Magnafsláttur verður veittur af öllum framleiðsluvörum félagsins og verður þar einnig gætt meðalhófs. Gangverð á þeim er nú 250,000,- kr. kg. Að hvetja gamla og aflóga bændur til dáða á túnum sínum.

Heimili og varnarþing: Grelutóttir, 465 Bíldudalur.

Stjórn: Nöfn þeirra verða ekki birt fyrr en búið er að færa stofnun félagsins inn í veðmálabækur Auðkúluhrepps.

Skoðunarmenn: Karl Karlsson leysingi á Karlsstöðum, Hjallkár á Hjallkárseyri og Rauður á Rauðsstöðum.

Hlutafé: 450,000,000,00- Fjögur hundruð og fimmtíu milljónir króna.-

Hömlur á meðferð hlutafjár: Já.

Lausnarskylda á hlutabréfum: Nei.

 

Gróðinn verður þvættaður samkvæmt meðalhófi

Í tilkynningu kemur fram, að þeir sem áhuga hafa á að kaupa hlutabréf, því það sé eftir miklu að slægjast, snúi sér til Sparisjóðs Auðkúluhrepps. Þá kemur þar fram að gróðinn verði þvættaður og verður þar stranglega gætt meðalhófs. Hann verður  ávaxtaður bæði þar og á svokölluðum Tortóla eða Jómfrúreyjum eða jafnvel Cayman Islands. Þar ku hann vera nokkuð öruggur fyrir Skattmann gamla. Samið verður við Notarii Publicii um að skipt verði um kennitölu ef í harðbakkann slær. Færast þá allar eignir af gömlu kennitölunni yfir á þá nýju og allir verða ánægðir nema skuldheimtumenn. Skuldir munu nefnilega gufa upp og þeir fá ekki fimmeyring!

Tekið skal fram, að hér er um fullan þjóðhagslegan sannleika að ræða, þó nokkuð sé hann færður í stílinn. Heyrst hefur að hreppsnefnd Auðkúluhrepps muni láta málið til sín taka og vísa því til innri endurskoðunar hreppsins.

 

Hallgrímur Sveinsson

DEILA