Ný bók: Hans Blær eftir Eirík Örn Norðdahl

Eiríkur Örn Norðdahl. Mynd: Gústi.

Eiríkur Örn Norðdahl hefur gefið úr nýja bók.  Í tilkynningu frá útgefanda segir að „Eiríkur stendur í fremstu röð íslenskra samtímahöfunda og hafa bækur hans komið út og hlotið margs konar viðurkenningar víða um heim. Fyrir skáldsöguna Illsku hlaut hann Íslensku bókmenntaverðlaunin og var tilnefndur til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Hér skoðar hann samtíma okkar með fránum augum nettröllsins Hans Blævar sem allt sér og engum hlífir.“

Textabrot úr bókinni:

Bókarkápan af bókinni Hans Blær eftir Eirík örn Norðdahl

Dömur mínar og lollarar, ég þakka ykkur frá innstu hjartarótum fyrir að setja ykkur í samband en háværar frásagnir af afhroði mínu, hruni, dauða, æruleysi og eignabruna eru sem sagt heldur orðum auknar: Ég lifi, sprikla og dilla mér þótt fjölmiðlar beri á mig ímyndaðar sakir og leyfi *sérfræðingum* (lol) að skálda í eyðurnar af sínu annálaða andríki.

Það er ekki liðin heil nótt frá því lögreglan barði að dyrum á Samastað, ekki hálf klukkustund frá því ég var sjálft hrakið á flótta, og sögurnar sem ég hef fyrir kærleika guðanna fengið að lesa um sjálft mig í þeim miðlum sem kalla sig „hefðbundna“ eða jafnvel „krítíska“ (he he) telja sennilega á annan tug. Það er að sönnu gaman að fylgjast með – svona einsog það er gaman að horfa á skordýr sem lent hefur á bakinu sprikla í þeirri von að finna fæturna aftur – en er þetta ekki pínulítið aumkunarvert? Í alvöru.

 

DEILA