Landsamband smábátaeigenda: andvíg kvótsetningu á grásleppu

Frá aðalfundi Landssambands smábátaeigenda 2018. Mynd: Kristinn H. Gunnarsson.

Aðalfundur Landssambands smábátaeigenda leggst gegn fyrirhugaðri kvótasetningu á grásleppuveiðum og vill að áfram verði byggt á núverandi veiðistýringu.

Ályktunin:

Aðalfundur LS leggur til að áfram verði byggt á núverandi veiðistjórnun á grásleppu, en telur nauðsynlegt að gera endurbætur á núverandi kerfi, bæði við ákvörðun um fjölda veiðidaga og fyrirkomulag veiða.
Aðalfundur LS leggur áherslu á að veiðitími liggi fyrir áður en vertíð er hafin.
Aðalfundur LS leggur til að hægt verði að gera hlé á veiðum.
Aðalfundur LS leggur til að heimilt verði að sameina 2 grásleppuleyfi á bát.

lokun veiðisvæða mótmælt

Aðalfundur LS mótmælir harðlega enn og aftur þeirri ákvörðun að loka svæðum að fengsælum miðum við grásleppuveiðar í Faxaflóa vegna æðarvarps. Fundurinn krefst þess að 4. málsgrein 9. greinar í reglugerð um hrognkelsaveiðar nr. 202 frá 4. mars 2016 verði tafalaust felld úr gildi.

Greinargerð Fjórir æðarbændur nýta varp á litlum hluta þessa svæðis en hafa náð með „lobbýisma“ að koma þessu banni í gegn. Benda má á að athugun fór fram á fjölda æðarfugla sem komu í net, en þessi athugun var framkvæmd af sérstökum eftirlitsaðila utan þeirrar skráningar sem grásleppusjómenn sjálfir skrá.

Aðalfundur LS skorar á forystu félagins að þrýsta á kaupendur grásleppu að gefa út verð viku áður en vertíð hefst.

DEILA