Hinsegin dagar fagna 20 ára afmæli

Árið 2019 verður stórt ár í hinsegin samfélaginu hér heima og erlendis. Ekki einungis verða þá liðin 50 ár frá Stonewall uppreisninni heldur fagna Hinsegin dagar í Reykjavík einnig 20 ára afmæli. Til að minnast uppreisnarinnar við Stonewall í Christopher street í New York, sem gjarnan er talin marka upphaf eiginlegrar réttindabaráttu hinsegin fólks, mun WorldPride, stærsti hinsegin viðburður í heimi, fara fram í New York í júní 2019 og má búast við milljónum þátttakenda.

Það var svo 30 árum eftir Stonewall uppreisnina, eða í júní 1999, sem í fyrsta sinn var haldin svokölluð hinsegin helgi á Ingólfstorgi. Þar komu 1.500 gestir saman til að sýna samstöðu og berjast fyrir auknum sýnileika og réttindum hinsegin fólks í íslensku samfélagi. Rúmu ári síðar var svo fyrsta gleðigangan gengin en með henni fylgdust allt að 12.000 gestir, sem var langt umfram björtustu vonir skipuleggjenda hennar. Gleðigangan hefur verið árviss viðburður síðan og er í dag ein fjölsóttasta hátíð á Íslandi.

Hinsegin dagar hafa vaxið og dafnað jafnt og þétt frá árinu 1999. Síðustu ár hefur hátíðin staðið í sex daga og viðburðir hvers árs verið allt að þrjátíu talsins. Nú verður hins vegar gefið enn frekar í með það að fagna hinu merka afmælisári.

Hinsegin dagar 2019 munu hefjast í Reykjavík fimmtudaginn 8. ágúst og standa yfir í 10 daga. Á dagskrá hátíðarinnar verður fjöldi fjölbreyttra, fræðandi og skemmtilegra viðburða en hápunkturinn verður svo gleðiganga og glæsileg útihátíð laugardaginn 17. ágúst.

Gunnlaugur Bragi Björnsson, formaður Hinsegin daga:

“Framundan er sannarlega stórt ár sem ber að fagna. Það hefur gríðarlega margt áunnist frá því að Hinsegin dagar voru fyrst haldnir, svo ekki sé minnst á þann tíma sem liðinn er frá Stonewall uppreisninni. Af þessu tilefni viljum við því lengja hátíðahöld tengd Hinsegin dögum. Með því gefst okkur ekki bara svigrúm til að bjóða upp á enn fleiri fræðsluviðburði en áður heldur einnig fleiri og stærri kvöldviðburði á borð við tónleika, dragsýningar og dansleiki.

Markmiðið er sem fyrr að þakka fyrir þann árangur sem náðst hefur en um leið auka sýnileika hinsegin fólks og halda baráttunni áfram enda margir sigrar enn óunnir. Að þessu sinni munum við þó gæta þess enn betur en áður að fagna og halda á lofti þeirri gleði sem einkennt hefur gleðigönguna frá upphafi. Það er nefnilega ekki alvöru afmæli án gleði þó svo að árin á undan hafi ekki endilega verið eintómur dans á rósum.”

Upplýsingar um Hinsegin daga og dagskrá afmælisársins verður hægt að finna á hinsegindagar.is og á samfélagsmiðlum.

Sæbjörg

sfg@bb.is

DEILA