Dýrafjarðargöng – Framvinda vika 39

Hér er samantekt af því helsta sem gerðist í viku 39 við vinnu Dýrafjarðarganga.

 

Byrjað var á lokastyrkingum í hægri vegg í göngunum. Bergboltum var komið fyrir á um 300 m kafla og sprautusteyptir voru 75 m áður en sementið kláraðist. Að auki var sprengt fyrir tengibrunnum við útskot B og H.

 

Í syðsta hluta vegarins í Arnarfirði var sett niður eitt ræsi og neðra burðarlag lagt á um 350 m kafla. Öðru ræsi var komið fyrir í tengiveginum að Mjólkárvirkjun. Í Dýrafirði var haldið áfram með fyllingavinnu í veg.

 

Syðri stöpull brúarinnar yfir Mjólká var steyptur á miðvikudeginum.

 

Byrjað var að taka niður steypustöðina og undirbúa fyrir flutning norður í Dýrafjörðinn. Í Dýrafirði var unnið við uppsetningu á verkstæðistjöldum, skrifstofum og vinnubúðum.

 

Á meðfylgjandi myndum má sjá þegar verið er að koma fyrir ræsi í tengiveginum að Mjólkárvirkjun, vegkaflann þar sem búið er að setja neðra burðarlag á veginn, myndir af vinnubúðunum í Dýrafirði og verkstæði og skrifstofur í Dýrafirði.

 

Baldvin Jónbjarnason, jarðeðlisfræðingur, Efla.

DEILA