Bolvíkingar á ASÍ þinginu fyrir 4 félög!

Hrund Karlsdóttir og Finnbogi Sveinbjörnsson. Mynd:Kristinn H. Gunnarsson.

Á ASÍ þinginu sem hófst í gær vill svo merkilega til að fjórir Bolvíkingar sitja þingið sem fulltrúar fyrir fjögur félög og þar af eru þrír formenn sinna félaga. Þetta eru Hrund Karlsdóttir, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Bolungavíkur, Finnborgi Sveinbjörnsson, formaður verkalýðsfélags Vestfirðinga, Magnús Már Jakobsson, formaður Verkalýðsfélags Grindavíkur og Pálína Vagnsdóttir, sem er fulltrúi fyrir Vr.

Blaðamaður bb.is var á staðnum og tók þessar myndir, auk þess að fá annars staðar frá mynd af Magnúsi Má.

Pálína Vagnsdóttir á ASÍ þinginu. Mynd: Kristinn H. Gunnarsson.
Magnús Már Jakobsson, formaður Verkalýðsfélags Grindavíkur.
DEILA