ASÍ þing hefst í dag

Frá 42. þingi ASÍ. Mynd: ASÍ.

Þriggja daga þing Alþýðusambands Íslands hefst í dag.

Þrjú hundruð fulltrúar frá 48 stéttarfélögum af öllu landinu koma saman á 43. þingi ASÍ á morgun. Þar verður stefna sambandsins til næstu tveggja ára mörkuð auk þess sem ný forysta verður kjörin á föstudag. Ljóst er að nýr forseti ASÍ og tveir nýir varaforsetar verða kjörnir auk þess sem búast má við nokkrum breytingum á fulltrúum í miðstjórn ASÍ en miðstjórnin fer með æðsta vald í Alþýðusambandinu á milli þinga. Tvö hafa tilkynnt framboð til forseta ASÍ, þau Drífa Snædal framkvæmdastjóri SGS og Sverrir Mar Albertsson framkvæmdastjóri og stjórnarmaður Afls. Til varforseta hafa þrír tilkynnt framboð; Kristján Þórður Snæbjarnarson formaður Rafiðnaðarsambands Íslands, Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR og Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness.

Fimm málefni verða rædd sérstaklega í hópavinnu á þinginu. Þau eru:

* Tekjuskipting og jöfnuður

* Jafnvægi atvinnuþátttöku og einkalífs

* Tækniþróun og skipulag vinnunnar

* Heilbrigðisþjónusta og velferðarkerfið

* Húsnæðismál

DEILA