Vestfjarðastofa styður við Lýðháskólann á Flateyri

Sigríður Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Vestfjarðarstofu og Helena Skaptason Jónsdóttir, skólastjóri Lýðháskólans á Flateyri, við undirritun samkomulagsins. Mynd: Vestfjarðastofa.

Vestfjarðarstofa fyrir hönd Fjórðungssambands Vestfirðinga og Félags um stofnun Lýðháskóla á Flateyri gerðu með sér samkomulag um stuðning við stofnun Lýðháskóla á Flateyri á dögunum samkvæmt tilkynningu á vef Vestfjarðarstofu. Segir í tilkynningunni að undirbúningur að stofnun Lýðháskóla á Flateyri hafi staðið í nokkurn tíma og að skólinn verði settur að viðstöddum Forseta Íslands þann 22. september næstkomandi. Um þrjátíu nemendur munu þá hefja nám í skólanum á tveimur námsbrautum.

Í umsókn kom fram að lýðháskóli svari ríkri kröfu um aukna valkosti í menntun. Byggt verði á hugmyndafræði lýðháskóla með áherslu á mannrækt, listsköpun, sjálfbærni, þjálfun og persónuleg gildi menntunar sem slíkrar, án prófa eða eininga. Gert verði ráð fyrir ríku félags- og fræðslustarfi utan námskrár skólans.

Fram kemur í tilkynningunni að stuðningur við stofnun Lýðháskóla á Flateyri sé meðal áhersluverkefna Sóknaráætlunar Vestfjarða árið 2018 og tengist meðal annars markmiðum áætlunarinnar um mannauð og hærra menntunarstig. Árangursmælikvarðar verkefnisins tengjast fjölda nemenda og fjölgun ungs fólks á Flateyri. Helena Jónsdóttir skólastjóri Lýðháskólans á Flateyri segir stuðning úr Sóknaráætlun Vestfjarða hafa skipt miklu máli til að tryggja að hægt væri að fara af stað með tvær námsbrautir haustið 2018.

Aron Ingi
aron@bb.is

DEILA