Útgáfa fjallskilaseðils í Vesturbyggð og Tálknafirði

Frá Patreksfirði. Mynd: Aron Ingi Guðmundsson.

Vesturbyggð og Tálknafjörður hafa nú gefið út fjallskilaseðil fyrir árið 2018 og er hann birtur á heimasíðum sveitarfélaganna. Fjallskil fara fram samkvæmt fjallskila-samþykkt fyrir Barðastrandar- og Ísafjarðarsýslur nr. 716/2012 sem auglýst er í B- deild Stjórnar-tíðinda.

Fjallskilanefnd skorar á alla land- og fjáreigendur að láta sinn hlut ekki eftir liggja og leggja fram menn í leitir samkvæmt beiðni leitarstjóra. Vanræksla eins aðila bitnar á öðrum og gerir allt skipulag erfitt í framkvæmd segir í tilkynningu sveitarfélaganna.

Tilgangurinn með útgáfu fjallskilaseðilsins er að reyna að létta smölun með því að sem flestir geti unnið saman og sem skemmstur tími líði milli smölunnar á sam-liggjandi svæðum. Árangurinn ætti að verða betri heimtur. Hlutverk leitarstjóra er að sjá til þess að leitir séu mannaðar. Dagssetningar á seðlinum eru byggðar á reynslu fyrri ára.

Tekið er fram að hafi einhverjir athugasemdir við seðilinn eða óski eftir aðstoð við smölun, skulu þeir hafa sambandi við formann fjallskilanefndar viðkomandi sveitar-félags.

Aron Ingi
aron@bb.is

DEILA