Þrír af fjórum komu úr eldi en einn var villtur

Villtur lax á leið upp Laugardalsá. Mynd: Hafró.

Hafrannsóknastofnun annast ýmsa þætti varðandi vöktun á laxveiðiám til að fylgjast með í hve miklu mæli strokfiskar úr eldi skili sér í veiðiár. Hluti af þessari vöktun er sú að laxar sem veiðast og eru grunaðir um að vera af eldisuppruna eru sendir í svokallaða arfgerðagreiningu á erfðarannsóknastofu Matís ohf.

Á síðustu tveimur vikum hefur stofnunin fengið tilkynningu um fjóra laxa, sem veiddust á Vestfjörðum og voru hugsanlega taldir ættaðir úr eldi. Óskaði stofnun í framhaldinu eftir að fá þá viðkomandi laxa til sýnatöku og arfgerðargreiningar en frá þessu er sagt á heimasíðu þeirra.

Þrír af þessum fjórum löxum voru eldislaxar en einn villtur lax. Eldislaxarnir veiddust í Laugardalsá, Selá í Skjaldfannardal og Staðará í Steingrímsfirði. Villti laxinn sem veiddist og grunaður var um að vera eldislax veiddist í Hvannadalsá í Ísafjarðardjúpi.

Hafrannsóknarstofnun skrifar að þessi fjöldi eldislaxa, eða þrír, á þessum svæðum, sé í samræmi við það sem áhættumat um erfðablöndun gerir ráð fyrir miðað við núverandi umfang sjókvíaeldiseldis hér við land. Hlutfall eldislaxa í þessum ám er, miðað við þennan fjölda laxa, vel undir þeim mörkum að erfðasamsetningu villtu stofnanna sé hætta búin.

Sæbjörg

bb@bb.is

DEILA