Sveitarfélög geta sótt um styrki fyrir þráðlausu neti

Ferðafólk sést stundum hópast saman fyrir utan hús með frítt wifi.

Samband íslenskra sveitarfélaga segir frá því að sveitarfélögum hefur staðið til boða að sækja um styrki fyrir þráðlaust net í almeningsrýmum hjá Evrópuverkefninu WiFi4EU. Opnað verður fyrir umsóknir nú í september, í síðari hluta mánaðarins.

Með almenningsrými, er átt við bókasöfn, heilsugæslustöðvar, söfn og almenningsgarða, svo að dæmi séu tekin. Á síðu verkefnisins eru ítarlegar upplýsingar ásamt leiðbeiningum fyrir umsækjendur, auk þess sem áhugasamir geta skráð sig þar fyrir sjálfvirkum tilkynningum varðandi umsóknarferlið.

Á næstu tveimur árum fara fjórar úthlutanir fram á vegum verkefnisins.

Sæbjörg

bb@bb.is

DEILA