Nemanja áfram með Vestra

Nemanja átti nánast öll fráköst í leiknum við Snæfell, verður gaman að sjá hvað hann gerir í kvöld. Mynd: Vestri.

Miðherjinn sterki Nemanja Knezevic verður áfram með körfuknattleiksliði Vestra á komandi tímabili. Nemanja var einn besti leikmaður 1. deildar á síðasta tímabili en meiddist skömmu fyrir úrslitakeppnina og náði ekki að ljúka tímabilnu með Vestra.

Tölfræðin talar sínu máli en hann var næst framlagshæstur allra í deildinni með 36.11 punkta, frákastakóngur deildarinnar með 17,9 fráköst, níundi stigahæsti leikmaðurinn með 22,16 stig auk þess að vera í þrettánda sæti yfir stoðsendingahæstu menn með tæpar 4 sendingar í leik.

Það er mjög ánægjulegt að sjá Nemanja aftur heilan heilsu á parketinu á Torfnesi og verður gaman að sjá hann láta til sín taka í vetur.

Sæbjörg

bb@bb.is

DEILA