Geðheilsuteymi tekur til starfa á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða

f.v. Magnús Baldursson, Ragnheiður Eiríksdóttir og Hallgrímur Kjartansson, framkvæmdastjóri lækninga hjá HVEST. Mynd: HVEST

Fram kemur í tilkynningu á heimasíðu Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða (HVEST) að Magnús Baldursson sálfræðingur og Ragnheiður Eiríksdóttir hjúkrunarfræðingur hafi tekið til starfa hjá HVEST. Þau munu ásamt Hallgrími Kjartanssyni yfirlækni heilsu-gæslu mynda nýtt geðheilsuteymi sem þjónar íbúum svæðisins. Segir í tilkynningunni að Magnús muni koma tvisvar í mánuði, tvo daga í senn og sinna ráðgjöf og meðferð skjólstæðinga ásamt frekari greiningu ef þörf er á. Hann hefur yfir 20 ára starfs-reynslu sem sálfræðingur, bæði í og utan Reykjavíkur. Hefur hann meðal annars unnið við stofurekstur, sem skólasálfræðingur og við greiningar og námskeiðahald á Þroska- og hegðunarmiðstöð heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Magnús er einnig starfandi sálfræðingur á heilsugæslu Garðabæjar. Eins og áður verða börn og ung-menni í forgangi hjá sálfræðingi, en hann kemur einnig að starfi mæðraverndar. Tilvísanir til sálfræðings fara í öllum tilfellum gegnum heimilislækna heilsugæslunnar.

Ragnheiður verður verkefnastjóri geðheilsuteymis og mun þar vinna að samhæfingu og eflingu geðheilbrigðisþjónustu á svæðinu sem HVEST þjónar. Að auki sinnir hún viðtölum og stuðningi við skjólstæðinga heilsugæslu. Ragnheiður hefur víða komið við í geðheilbrigðisþjónustu, meðal annars á bráðadeild geðsviðs Landspítalans Háskólasjúkrahúss, móttökudeildum og bráðaþjónustu. Hún hefur einnig unnið sem geðhjúkrunarfræðingur við Tækniskólann og um árabil sinnt ýmsum verkefnum er varða kynheilbrigði. Ragnheiður er einnig starfandi sem ráðgjafi á stofu í Reykjavík og við blaðaskrif um kynlíf og heilsu.

Magnús og Ragnheiður munu í vetur bjóða upp á hugræna atferlismeðferðarnám-skeið (HAM) á heilsugæslustöðinni fyrir fullorðna með áherslu á kvíða og depurð. Fleiri námskeið verða einnig í boði en dagsetningar og nánari upplýsingar verða auglýstar síðar.

Samkvæmt tilkynningunni er geðheilsuteymi HVEST stofnað með það fyrir augum að efla þjónustu fyrir íbúa svæðisins. Teymið mun hafa yfirsýn yfir þá þjónustu sem er í boði og stuðla að því að hún nýtist sem best. Samskipti við aðrar stofnanir, fagaðila og meðferðarúrræði er varða geðheilbrigðismál verða í höndum verkefnisstjóra.

Aron Ingi
aron@bb.is

DEILA