Gamanmyndahátíð á Flateyri

Gamanmyndahátíðin verður haldin um helgina í menningarþorpinu Flateyri.

Gamanmyndahátíð Flateyrar verður haldin í þriðja sinn, dagana 13-16. september. Hátíðin í ár er sérstaklega glæsileg, þar sem hlátur og gleði er í fyrirrúmi, líkt og fyrri ár. Hátíðin fer að mestu fram í 80 ára gömlum bræðslutanki sem stendur á Sólbakka við Flateyri.

Hátíðin hefst fimmtudaginn 13. september þegar leiksýningin Hellisbúinn verður sett upp í Samkomuhúsinu á Flateyri, en þetta er í fyrsta sinn sem að leiksýning er á dagskrá hátíðarinnar.

Í ár verða þrjátíu íslenskar gamanmyndir sýndar og af þeim eru ellefu frumsýningar. Sú nýbreytni verður á hátíðinni í ár að Steypustöðin ætlar að bjóða upp á sérstaka barnasýningu. Þar verður myndin Algjör sveppi og Dularfulla hótelherbergið sýnd. Ein af aðalpersónum myndarinnar, Villi Vísindamaður verður viðstaddur sýninguna og ræðir myndina við börnin ásamt því að gera nokkrar brjálaðar vísindatilraunir.

Heiðursgestur hátíðarinnar er Óskar Jónasson leikstjóri og myndin hans, Sódóma Reykjavík er heiðursmyndin í ár. Þar fyrir utan verða sýndar tvær af fyrstu myndum Óskars, þær Oxsmá plánetan og Sjúgðu mig Nína, sem hefur verið með öllu óaðgengileg frá því að hún kom úr árið 1985. Myndin hefur þó lifað góðu lífi í formi sögusagna, enda hefur myndin skipað sér í fremstu röð meðal íslenskra költ mynda. Með aðalhlutverk í Sjúgðu mig Nína fara þau Kormákur Geirharðsson og Halla Margrét Árnadóttir, sem eru heldur þekktari fyrir tónlist sína en leikhæfileika í dag.

Áskorun til kvikmyndagerðarmanna

Á undanförnum árum hefur Gamanmyndahátíð Flateyrar sýnt tæplega 100 íslenskar gamanmyndir og ljóst að sá sjóður er ekki botnlaus, en hátíðarhöldurum hefur tekist að grafa ansi djúpt eftir mörgum myndum, og reyndar bjargað nokkrum þeirra frá glötun með því að fjármagna yfirfærslu mynda yfir á stafrænt form.

Svo hátíðin megi dafna og lifa um ókomna tíð þarf að framleiða fleiri gamanmyndir á Íslandi. Því skorar Gamanmyndahátíð Flateyrar á íslenskt kvikmyndagerðarfólk að framleiða fleiri gamanmyndir á komandi árum.

Sæbjörg

bb@bb.is

DEILA