Andre Hughes til liðs við körfuknattleikslið Vestra

Andre Hughes í leik með Eastern New Mexico Greyhounds. Mynd: Vestri.

Körfuknattleiksdeild Vestra hefur samið við Andre Hughes um að leika með liðinu á komandi tímabili en frá þessu segir á heimasíðu Vestra. Andre er 204 sm hár, 104 kg og fjölhæfur leikmaður sem getur leyst fleiri en eina stöðu á vellinum. Honum er þó fyrst og fremst ætlað að fylla það skarð sem þeir Nökkvi Harðarson og Adam Smári Ólafsson skilja eftir sig í stöðu framherja.

Andre lék síðast með Eastern New Mexico háskólanum þaðan sem hann útskrifaðist fyrr á þessu ári. Stjórn og þjálfari körfuknattleiksdeildar Vestra binda miklar vonir við Andre og á hann eflaust eftir að reynast Vestra vel í þeirri hörðu baráttu sem framundan er í 1. deild karla.

Sæbjörg

bb@bb.is

DEILA