Framúrskarandi árangur á fyrsta ári Blábankans

Blábankinn hefur verið í samstarfi með 8 þróunarverkefni. Mynd: Blábankinn.

Blábankinn er tilraunaverkefni og þróunarmiðstöð á Þingeyri þar sem íbúar eru um 250. Hann er samstarf bæði einkaðila og opinberra aðila og nú hefur aðstandendur Blábankans gefið út skýrslu þar sem segir frá framúrskarandi árangri á fyrsta ári bankans. Þar hafa til að mynda 70 skapandi einstaklingar unnið 900 daga og 87 viðburðir verið haldnir með 1300 þátttakendum. Það hefur líka verið samstarf um 8 þróunarverkefni og 5 samningar gerðir um þjónustu við Þingeyringa.

Þjónustumiðstöð
Eitt af markmiðum Blábankans er að bæta þjónustu opinberra og einkaaðila á Þingeyri. Blábankinn er þess vegna þjónustumiðstöð og starfsmenn Blábankans hans sjá í sumum tilfellum um þjónustu á vegum 7 aðila. Í Blábankanum hefur Landsbankinn lítið útibú, Verkalýðsfélag Vestfirðinga, Snerpa, Bókasafnið, Vestfjarðastofa og Ísafjarðarbær.

Staðbundin stofnun
Á undanförnum árum hafa nær svo gott sem allar stofnanir sem áður voru kjölfesta samfélagsins á Þingeyri yfirgefið þorpið. Nær allar ákvarðanir er varða samfélag og atvinnulíf á Þingeyri eru teknar utan byggðarlagsins. Stærstu fyrirtækjunum er stjórnað annarstaðar og svo gott sem öll stjórnsýsla á sér stað annarstaðar. Þetta hefur neikvæð áhrif á frumkvæði, hæfni og tengsl samfélagsins til að móta sín eigin örlög útfrá eigin sérstöðu og aðstæðum. Blábankinn hefur reynt að vinna gegn þessu með því að ýta undir og taka frumkvæði í málum er varða íbúa.

Þjónusta í heimabyggð
Blábankinn hefur eftir bestu getu reynt að vinna með aðilum til að þjónusta sé veitt í heimabyggð. Þetta eykur virknina í samfélaginu sem hefur áhrif, umfram þann tíma sem sparast íbúunum að þurfa að keyra til Ísafjarðar eða Reykjavíkur. Á sama tíma vinnur Blábankinn að því að reyna að nýta sér þau tækifæri sem felast í aukinni rafvæðingu þjónustu fyrir dreifðari byggðir og horfir til framtíðar í þeim efnum.

Frumkvöðlasetur
Það segir sína sögu um atvinnulíf á Þingeyri að þegar Blábankinn tók til starfa vann enginn íbúa þar dæmigert skrifstofustarf. Blábankinn opnaði samvinnurými (co-working space) með ljósleiðaratengingu og sveigjanlegu skrifstofurými. Unnið var markvisst að því að laða að frumkvöðla, einyrkja og skapandi fólk. Blábankinn stendur m.a. fyrir nýsköpunarhraðli, samstarfi við gestavinnustofur listamanna o.s.frv.

Á fyrstu 12 mánuðum verkefnisins nýttu um 70 manns frumkvöðlasetrið, og unnu þar 900 vinnudaga (utan þeirra sem unnir voru fyrir Blábankann beint). Margir af þeim sem komu og dvöldu á Þingeyri tóku virkan þátt í samfélaginu, héldu m.a. fyrirlestra og tóku þátt í hugmyndavinnu um þróun á svæðinu. Blábankinn telur að þetta sé og hafi burði til að vera árangursrík fjárfesting í því að skapa fjölbreyttara atvinnulíf, og með tímanum skapandi vistkerfi á staðnum. Meðal notenda voru forritarar og tæknifólk, fræðifólk, frumkvöðlar og listafólk.

Nýsköpun og samfélagsþróun
Blábankinn tekur þátt í 8 þróunar- og nýsköpunarverkefnum, í sumum er hann megin drifkraftur og í öðrum stuðningsaðili. Þá hefur hann á fyrstu 12 mánuðum 20 sinnum veitt minniháttar hjálp við atvinnuþróun, s.s. við umsóknargerð og markaðssetningu.
Ávinningar og áskoranir

Nýtt vistkerfi
Með því að vera áfangastaður fyrir frumkvöðla, skapandi fólk og listamenn hefur Blábankinn skapað vísi að vistkerfi byggðu á hugviti og sköpun, sem hefur möguleika á að bæta nýrri vídd í atvinnulíf og samfélagið á Þingeyri. Það getur til lengri tíma skapað fjölbreyttari tækifæri á staðnum.

Skortur á ungu fólki og einhæft atvinnulíf sem fyrir er gerir þetta að langtíma verkefni, og gerir að verkum að Blábankinn þarf að laða til sín fólk allstaðar að. Ótryggar samgöngur, sérstaklega að vetri til, og mikill kostnaður við ferðalög innan Íslands hjálpar ekki.

Ímynd tækifæra
Markviss ímyndasköpun og jákvætt umtal sem Blábankinn reynir að skapa eykur vonandi áfram áhuga á Þingeyri og líkurnar á því að fleiri vilji setjast þar að og leita tækifæra þar, sérstaklega meðal ungs fólks.

Fjármögnun
Blábankinn reynir eftir fremsta megni að skapa tekjur út frá eigin verkefnum. Hann nýtur stuðnings frá Samgöngu- og sveitastjórnarráðuneytinu, sem er stærsti fjárhagslegi bakhjarl verkefnisins. Þá hefur Blábankinn gert þjónustusamninga, hlotið verkefnastyrki, og fengið stofnfé og styrki frá einkaðilum.

Opinber stuðningur við verkefnið stendur þó ekki undir heilu starfsgildi til lengri tíma, og eðli verkefnisins og aðstæðna á Þingeyri eru þær að mjög ólíklegt er að reksturinn standi undir sjálfum sér óstuddur fyrstu árin. Það verður því töluverð áskorun að tryggja áframhaldandi rekstur starfseminnar.

Við Blábankann er eitt stöðugildi sem deilt er með tveimur starfsmönnum en við því hlutverki hafa Haukur Sigurðsson og Vaida Brazlunalte tekið á meðan að Arnar Sigurðsson og Arnhildur Lilý Karlsdóttir eru í fæðingarorlofi.

Sæbjörg
bb@bb.is

DEILA