Um 300 sauðfjárbændur skiluðu ekki vorbók á tilsettum tíma

Í samningum bænda og ríkis sem tók gildi 1. janúar 2017 er sett skilyrði fyrir stuðningsgreiðslum til bænda að þeir þurfi að vera þátttakendur í afurðaskýrsluhaldi og skuli skila fullnægjandi skýrsluhaldi innan tímamarka. Þannig er kveðið á um það í reglum um stuðning við sauðfjárrækt að sauðfjárbændur skuli skila vorbók í Fjárvís eigi síðar en 20. ágúst ár hvert, ella skuli stuðningsgreiðslur frestast frá og með 1. september það ár.

Matvælastofnun sem annast stuðningsgreiðslur ber því samkvæmt þessu að fresta greiðslum í september til þeirra sauðfjárbænda sem hafa ekki skilað vorbók í Fjárvís.

Þegar þetta er skrifað hafa 277 sauðfjárbændur ekki enn skilað vorbók í Fjárvísi, sem þýðir að þeir muni ekki fá stuðningsgreiðslur til sín greiddar þann 1. september. Þessi fjöldi kemur verulega á óvart í ljósi þess að skilafresti var frestað um mánuð frá fyrra ári til að gefa bændum rýmri tíma til að ganga frá skýrsluhaldinu, sem og auðvitað að þetta mun þýða frestun á stuðningsgreiðslum.

Næsta útgreiðsla stuðningsgreiðslna er 1. október, sem er þá síðasta greiðsla til sauðfjárbænda á þessu ári, en sauðfjárbændur fengu greiddar nóvember og desember greiðslur fyrirfram fyrr á árinu í samræmi við reglugerð um stuðning við sauðfjárrækt. Þeir bændur sem höfðu ekki skilað vorbók á tilsettum tíma fá septembergreiðslu greidda í október þegar þeir hafa skilað inn vorbókinni.

Sæbjörg

bb@bb.is

DEILA