Tillaga að starfsleyfi fyrir Arctic Smolt hf í Tálknafirði

Tálknafjörður.

Á vef Tálknafjarðar kemur fram að Umhverfisstofnun hafi unnið tillögu að nýju starfsleyfi fyrir Arctic Smolt hf. til framleiðslu á allt að 1.000 tonnum á ári af laxa- og regnbogasilungsseiðum í landeldi að Norður-Botni í Tálknafirði. Segir í tilkynningunni að rekstraraðilinn sé með 200 tonna leyfi á sama stað og er því að auka framleiðsluna. Fram kemur að tillagan ásamt umsókn rekstraraðila verði aðgengileg á vefsíðum Umhverfisstofnunar og Tálknafjarðarhrepps á tímabilinu 17. ágúst til 17. september næstkomandi.

Í umsögninni kemur fram að Umhverfisstofnun telji að mengun verði aðallega í formi lífræns úrgangs, bæði í föstu og uppleystu formi, frá eldinu og muni berast í viðtakann sem er Tálknafjörður. Að mati stofnunarinnar eru áhrif mengunarinnar afturkræf og munu því ekki hafa varanlega áhrif á umhverfið en jafnframt er hægt að grípa til aðgerða ef aðstæður breytast með ákvæðum í starfsleyfi.

Bent er á að athugasemdum við tillöguna skulu vera gerðar skriflega og sendar Umhverfisstofnun. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 17. september næstkomandi.

Aron Ingi
aron@bb.is

DEILA