Óskað eftir umsögn um ofanflóðavarnir á Patreksfirði

Frá Patreksfirði, þarna sést fyrirhugað framkvæmdasvæði ofanflóðavarnargerðar. Mynd: Aron Ingi.

Á bæjarráðsfundi í Vesturbyggð, þann 20. ágúst var lagt fram bréf frá Skipulagsstofnun, dagsett 20.júní 2018, þar sem óskað er eftir umsögn um frummatsskýrslu varðandi mat á umhverfisáhrifum ofanflóðavarna á Patreksfirði, við Urðargötu, Hóla og Mýrar. Skipulags- og umhverfisráð telur að á fullnægjandi hátt sé gerð grein fyrir fyrirhugaðri framkvæmd og umhverfi hennar, umhverfisáhrifum og mati framkvæmdaaðila á þeim, og gerir ekki athugasemdir við fyrirhugaðar mótsvægisaðgerðir og vöktun að svo komnu máli.

Skipulags- og umhverfisráð vill benda á að framkvæmdin er háð framkvæmdaleyfi bæjarstjórnar samkvæmt 13. gr. skipulagslaga. Eftir atvikum þarf einnig að sækja um leyfi til Heilbrigðiseftirlits Vestfjarða vegna uppsetningu vinnubúða sbr. Reglugerð nr. 724/2008 m.s.br. um hávaða og einnig reglugerð 785/1999 um starfsleyfi fyrir atvinnurekstur sem getur haft í för með sér mengun eða skv. hollustuháttareglugerð nr. 941/2002 og matvælalögum. Framkvæmdin þarf að vinnast í samræmi við lög um Vinnueftirlitið, þ.e. lög nr. 46/2008 m.s.br. um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum.

Aron Ingi
aron@bb.is

DEILA