Nýja brúin í Bjarnarfirði stendur ónotuð

Gamla brúin yfir Bjarnarfjarðará sem enn er í notkun. Mynd: Vegagerðin

Ný brú yfir Bjarnarfjarðará í Bjarnarfirði í Kaldrananeshreppi hefur staðið ónotuð og ótengd við nýjan veg yfir Bjarnarfjarðarháls í tvo mánuði. Frá þessu sagði Halla Mía á RÚV. Kristinn G. K. Lyngmó, eftirlitsmaður hjá Vegagerðinni, segir að vegna fjármagnsskorts við framkvæmdir á nýjum vegi yfir Bjarnarfjarðarháls hafi brúarsmíðinni verið frestað um ár og Borgarverk, sem sér um vegagerðina, hélt í önnur verkefni þar til brúin yrði tilbúin.

Brúarsmíðinni lauk um mánaðamótin júní, júlí og var vonast til að Borgarverk kæmist fljótlega í að tengja brúna en samkvæmt Kristni Sigvaldasyni, stjórnarformanni Borgarverks, má ekki búast við því að fyrirtækið komist í verkið fyrr en í október. Þá verður brúin tengd en samkvæmt Kristni Lyngmó verður beðið með að setja bundið slitlag þar til næsta vor. Á meðan ekki er búið að tengja nýju brúna er ekið eftir gamla veginum og yfir einbreiða brú yfir Bjarnarfjarðará.

Borgarverk hefur undanfarið unnið að breikkun og endurbótum á Vestfjarðavegi 60 um Hvolsdal í Dalabyggð. Nú er unnið að setja þar bundið slitlag en samkvæmt áætlun á verkinu að ljúka 1. september.

Sæbjörg

bb@bb.is

DEILA