Fornleifadagur í Arnarfirði

Laugardaginn 25. ágúst verður kynning á spennandi fornleifarannsóknum sem farið hafa fram á Hrafnseyri og Auðkúlu í Arnarfirði.

Margrét Hrönn Hallmundsdóttir fornleifafræðingur, stjórnandi rannsóknanna og fornleifafræðingar sem þar eru að störfum munu segja frá rannsóknunum og spjalla við gesti og gangandi.

Kynningin hefst á Hrafnseyri kl. 14:00 á stuttum fyrirlestri. Eftir það verður leiðsögn um rannsóknarsvæðin á Hrafnseyri og síðan á Auðkúlu þar sem gefst einstakt og sjaldgæft tækifæri til að skoða leifar landnámsskála frá 9. öld.

Sæbjörg

bb@bb.is

DEILA