Arnarlax fékk ekki ASC umhverfisvottun

Sú kynslóð sem er alin núna í laxeldi Arnarlax í Tálknafirði fær ekki ASC-vottun en um er að ræða vottun sem fylgir ítarlegum stöðlum um sjálfbæra samfélags- og umhverfisvæna sjávarvöruframleiðslu. Þetta kemur fram hjá Fréttablaðinu í gær og ástæðan fyrir því að Arnarlax fær ekki vottun er sögð vera sú að staða lífríkis á botni Tálknafjarðar sé neikvæð, laxadauði er tíður og umfang laxalúsar of mikið.

Niðurstaða úttektar vottunaraðilans var birt 27. ágúst. Af henni að dæma hefur Arnarlax bætt úr ýmsu sem gerðar voru athugasemdir við í ferlinu. Aðgerðir fyrirtækisins duga hins vegar ekki til og eldið fær ekki vottun, að þessu sinni. Vísað er til stöðu lífríkis í nágrenni eldisins en mælingar á súrefnisástandi botnsjávar og fjölbreytileika og magni botndýra í nágrenni eldisins, ná ekki viðmiðum þeirra staðla sem stuðst er við. Þá er tíðni óútskýrðs laxadauða of há hjá Arnarlaxi til að uppfylla skilyrði vottunaraðilans eða 22 prósent. Að lokum fer umfang lúsavandans einnig upp fyrir leyfilegt viðmið vottunar og áhrif þess á villta laxastofninn hafa ekki verið nægilega rannsökuð.

Í niðurstöðunni er þó, með vísan til viðbragða og úrbóta fyrirtækisins í vottunarferlinu, mælt með Arnarlaxi sem umsækjanda um vottun í framtíðinni.

„Við erum fullviss um að næsta kynslóð í Laugardal fái vottun,“ segir Þóra Dögg Jörundsdóttir, gæðastjóri Arnarlax, og segir synjun um vottun á þessu svæði ekki hafa áhrif á fyrirhugaðar umsóknir um vottun fyrir önnur eldissvæði.

„Þó fiskurinn í Laugardal standist ekki vottun, það er framleiðslan sem þar er núna, þá er vottunaraðili að segja í þessari samantekt að ferlar og rekstur Arnarlax séu í samræmi við kröfur í ASC-staðlinum,“ segir Þóra í samtali við Fréttablaðið.

Sæbjörg
bb@bb.is

DEILA