Rífandi gangur í göngunum

Vatnsleki á stafni í Dýrafjarðargöngum

Gangagröftur gekk vel í vikunni sem var að líða og lengdust göngin um 88,0 m og er þá orðin 2.821,9 m sem er um 53,2% af heildarlengd.

Dýrafjarðargöng, framvinda Arnarfjarðarmegin.

Í all langan tíma hafa göngin verið nokkuð þurr en á laugardaginn síðast liðinn lentu gangamenn í nokkuð góðri vatnsæð þar sem innrennslið mældist um 20 lítrar á sekúndu af 15,5 °C heitu vatni. Gert er ráð fyrir að rennslið minnki nokkuð með tímanum og hefur þetta innrennsli lítil áhrif á framvindu.

Nýja bráðabirgðabrúin yfir Hófsá var tekin í notkun.
Gamla brúin yfir Hófsá var rifin.

Annað var nokkuð hefðbundið, þ.e. unnið í fyllingar- og skeringarvinnu í Arnarfirði og Dýrafirði er verið að undirbúa fyrir aðstöðusköpun. Þá var bráðabirgðabrú yfir Hófsá tekin í notkun fyrir almenna umferð og í morgun var hafist handa við niðurrif á þeirri gömlu.

Sæbjörg

bb@bb.is

DEILA