Heimildamynd um Óshlíð sýnd í kvöld

Óshlíð

Í kvöld verður sýnd heimildamynd um Óshlíðina í Edinborgarhúsi. Sýningin hefst klukkan 20 og tekur um 30 mínútur en eftir hana mun leikstjórinn, Sarah Thomas, svara spurningum úr sal. Í fréttatilkynningu með myndinni segir: „Í myndinni förum við Óshlíðina en hún er aflagður vegur, sem var á sínum tíma einn sá hættulegasti á Íslandi en umhverfið er hrikalega fallegt á sama tíma. Eftir að göngin voru opnuð 2010 hefur náttúran smá saman brotið veginn niður. Annars vegar með skriðum og grjóthruni úr fjöllunum og hins vegar með ágangi sjávar. Myndin segir sögu fólks sem notaði veginn um Óshlíð, hélt honum við og lifði með honum eða dó á honum.“

„This film takes us on a journey along Óshlíð, an abandoned coastal road which is considered to be one of the most dangerous, and beautiful, in Iceland. Following the construction of a mountain tunnel in 2010, the road was closed and is now in the process of being rapidly reclaimed by both the mountain and the sea. The film delves into the stories of this road and its relationship with the people who maintained, travelled, lived and died on Óshlíð. Through these voices it reflects upon a post-human landscape and the nature of mortality.“

Sæbjörg

bb@bb.is

DEILA