Ásthildur á leið til Akureyrar

Ásthildur Sturludóttir

Akureyrarkaupstaður hefur ákveðið að ganga til samninga við Ásthildi Sturludóttur um að taka að sér starf bæjarstjóra á Akureyri, en frá þessu er greint á Rúv. Ásthildur gengdi áður stöðu bæjarstjóra í Vesturbyggð.

Hún var ráðin þar af D-lista Sjálfstæðisflokks og óháðra árið 2010 og gengdi starfi bæjarstjóra í Vesturbyggð í átta ár. Hún var bæjarstjóraefni D-listans í Vesturbyggð fyrir kosningarnar 26. maí, en lét af störfum þar í kjölfar kosninganna þegar nýr meirihluti ákvað að auglýsa starfið.

Alls sóttu 18 um starf bæjarstjóra á Akureyri en tveir umsækjendur drógu umsóknir sínar til baka. Eftir úrvinnslu umsókna og viðtöl ákvað meirihluti bæjarstjórnar að ganga til samninga við Ásthildi. Hún tekur við af Eiríki Birni Björgvinssyni sem var bæjarstjóri síðustu átta ár.

Ásthildur er uppalin í Stykkishólmi og er með BA-próf í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands og MPA-gráðu (Master of Public Administration) í opinberri stjórnsýslu frá PACE University í New York. Ásthildur starfaði áður sem verkefnisstjóri á rektorsskrifstofu og markaðs- og samskiptasviði Háskóla Íslands. Hún var einnig verkefnisstjóri við byggingu tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu, framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi og atvinnuráðgjafi hjá SSV-þróun og ráðgjöf.

Það eru margir sem sjá eftir Ásthildi í Vesturbyggð og við óskum henni góðs gengis á nýjum slóðum.

Sæbjörg

bb@bb.is

DEILA