54 metrar grafnir og 15 metrar í hliðarrými

Horft út eftir forskeringunni í Dýrafirðinum.

Í viku 28 voru grafnir 54,0 m í göngunum og 15 m í hliðarrými í útskoti G. Samtals voru því grafnir 69 m. Lengd ganganna í lok viku 28 var 2.955,9 m sem er 55,8 % af heildarlengd ganganna.

Í vikunni var grafið í útskoti G sem er með neyðarrými auk þess sem sniðið í göngunum sjálfum er stærra. Í lok vikunnar var eftir að sprengja eina færu í neyðarútskotinu en sniðið í göngunum sjálfum var aftur orðið venjulegt. Grafið var í þurru basalti alla vikuna. Efnið úr göngunun var keyrt í vegfyllingar.

Vegagerðin hamrar niður staur fyrir brúna yfir Mjólká.

Haldið var áfram með vegfyllingar suður af Mjólkánni, í átt að höfninni sem er þar og farið að styttast í enda vegarins sem verður gerður í suður átt. Að auki var fyllt í vegkafla neðan við Mjólkárvirkjun og jafnað úr fláafleygum.

Á mánudag komu tveir starfsmenn frá Vegagerðinni og hófust handa við að slá niður steypta staura sem koma undir sökkla á brúnni yfir Mjólká og var klárað að koma fyrir staurum undir nyrðri sökkulinn.

Í Dýrafirði var haldið áfram með forskurð bergs (presplit) í forskeringunni.

Sæbjörg

bb@bb.is

DEILA