Telja að Ísafjarðarbær hafi beitt óeðlilegum pólitískum þrýstingi

Ísafjarðardjúp.

Landssamband veiðifélaga hefur krafist þess að rannsókn sé gerð á málsmeðferð Skipulagsstofnunnar varðandi útgefið álit um 6800 tonna laxeldi í Ísafjarðardjúpi, en í apríl dró stofnunin álitið til baka. Þetta kemur fram í erindi Landssambandsins sem aðstandendur þess sendu til Guðmundar Inga Guðbrandssonar umhverfisráðherra og sagt er frá í Viðskiptablaðinu. Landssambandið krefst þess að ráðuneytið rannsaki og gefi álit um hvort þessi málsmeðferð Skipulagsstofnunnar samræmist lögum og góðum stjórnsýsluháttum. Landssamband Veiðifélaga telur einnig að Ísafjarðarbær hafi beitt Skipulagsstofnun óeðlilegum pólitískum þrýstingi til að draga álit sitt til baka, en rökstyður ekki í fréttatilkynningunni eða útskýrir hvernig sá þrýstingur var nákvæmlega. Sambandið byggir þessa afstöðu sína á fundargerðum sveitarfélagsins og fer fram á frekari rannsókn, þá væntanlega á meintum þrýstingi. Landssambandið telur að ef álitið eigi ekki að standa þá þurfi að endurupptaka málið með útgáfu nýrrar frummatsskýrslu sem auglýst verði til umsagnar.

Sæbjörg

sfg@bb.is

DEILA