Tálknafjarðarhreppur auglýsir deiliskipulag fyrir athafnasvæði fisk- og seiðaeldis

Tálknafjörður. Mynd: Mats Wibe Lund.

Sveitarstjórn Tálknafjarðarhrepps hefur auglýst tillögu að deiliskipulagi fyrir athafnasvæði seiðaeldis í landi Innstu Tungu í Tálknafirði. Þetta kemur fram á heimasíðu Tálknafjarðarhrepps. Skipulagssvæðið er á Breiðaparti í landi Innstu Tungu fyrir innan þéttbýliskjarnann og afmarkast af Tálknafjarðarvegi nr. 617 að vestan, Maggalæk að norðan, fjöru að vestan og landamörkum Gileyrar að sunnan. Núverandi stærð svæðisins með landfyllingu er um 3,6 hektarar. Deiliskipulagstillagan hefur verið til sýnis á skrifstofu Tálknafjarðarhrepps að Miðtúni 1 frá og með 28. maí síðastliðnum og verður til 9. júlí 2018. Einnig er hægt að skoða tillöguna á heimasíðu hreppsins og þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta geta gert athugasemdir fram til 9. júlí.

Sæbjörg

sfg@bb.is

DEILA