Samtökin fagna hertu eftirliti með heimagistingu

Stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar fagnar sérstöku átaksverkefni um hert eftirlit með heimagistingu sem ríkisstjórnin samþykkti nýverið, og þakkar ráðherra ferðamála fyrir frumkvæði í málinu. Samtök ferðaþjónustunnar hafa lengi bent á þörfina fyrir stóraukið eftirlit með leyfisskyldri gististarfsemi, enda er ljóst að umfang ólöglegrar gististarfsemi undir merkjum Airbnb og sambærilegra deilikerfa skekkir samkeppnisumhverfi ferðaþjónustufyrirtækja.

Það er ótækt að óábyrgir aðilar komist upp með að reka gistiþjónustu í samkeppni við ábyrgan atvinnurekstur án þess að skila sköttum og skyldum, en þannig fara forgörðum um 2 milljarðar króna sem annars gætu nýst til uppbyggingar innviða í ferðaþjónustu. Brýnt er að fjármagnið sem lagt er í verkefnið skili sér einnig í eftirlit á ólöglegri gististarfsemi utan höfuðborgarsvæðisins.
Átaksverkefni um hert eftirlit er því mikilvægt fyrsta skref í því að koma ólöglegri gististarfsemi upp á yfirborðið, segir í yfirlýsingu frá stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar.

Sæbjörg
bb@bb.is

DEILA