Reynir Trausta les upp úr Þorpinu sem svaf

Reynir Traustason og Þorpið sem svaf.

Næsta föstudag verður upplestur úr bókinni Þorpið sem svaf eftir Reyni Traustason í Edinborgarhúsinu á Ísafirði klukkan 20:00. Reynir mætir svo á Bryggjukaffi á Flateyri á laugardaginn klukkan 17 og Kaffi Norðurfjörð í næstu viku.

Þorpið sem svaf gerist í litlu byggðarlagi. Þar er að finna sögur af fólki og örlögum þess. Kvótinn er seldur og vinnan fer. Kóngarnir geyma auð sinn í aflandinu. Eftir situr fólk í sárum. Þetta eru sögur af svindli ekki síður en ást og kærleika. Fossarnir eru þurrkaðir upp. Heiðinni er sökkt til að framleiða rafmagn fyrir stóriðju. Peningamenn græða á meðan náttúran grætur. Allt selt og hreinleikinn horfinn.

Reynir Traustason bjó á Flateyri í 37 ár þar sem hann starfaði sem sjómaður lengst af. Mannlífið i þorpinu er honum því kunnuglegt. Sögusviðið er þorpið Kvóteyri en sögurnar eru margar byggðar á raunverulegum atburðum en samt skáldskapur. Reynir Torfason, fyrrverandi bæjarlistamaður á Ísafirði, teiknaði með sögunum.

Bókin hefur fengið góðar móttökur og til dæmis þessar umsagnir:

„Létt og góð lesning mikill húmor, einnig kaldhæðni örlaga og viðskipta.“
Stefán Hrafn Magnússon hreindýrabóndi á Grænlandi.

„Ævintýralega lífsfjörugar sögur og samt sannar, eins og hann skrifi með blóðinu úr sér.“ Auður Jónsdóttir rithöfundur.

„Var að ljúka lestri bókarinnar Þorpið sem svaf. Gat nú ekki annað en hlegið þegar ég las einn kafla bókarinnar sem búið er að færa skemmtilega í skáldsögustílinn. Þar er lýst atburði sem ég tel mig geta heimfært nokkuð nákvæmlega við menn og málefni, stað og stund og er eitt þeirra atvika sem gaman er að rifja upp öðru hvoru. Gæti jafnvel hent í hvaða þorpi sem er ef „réttar“ aðstæður skapast. Snilldarlesning! Til hamingju með bókina Reynir Traustason.“ Jón Svanberg Hjartarson.

„Sem fyrr sýnir höfundur sterk tök sín á mannlífi og stemningu, undir kraumar pólitíkin. Þorpið sem svaf lýsir á raunsannan hátt hvernig ein börn fengu vængi en önnur festust í hreiðrum sínum. Vera má að sumir hugsi höfundi þegjandi þörfina en svona var þetta nú samt og viðgengst enn.“ Lýður Árnason, læknir og leikstjóri.

Sæbjörg

sabjorg@gmail.com

DEILA