Rekstrarniðurstaða Reykhólahrepps jákvæð um 69,4 milljónir króna

Reykhólahreppur

Reykhólahreppur hefur birt ársreikning fyrir árið 2017 og sett á heimasíðu sína. Helstu niðurstöður eru þær að rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu námu 596 milljónum króna samkvæmt rekstrarreikningi fyrir A og B hluta, en þar af námu rekstrartekjur A hluta 455,4 milljónum króna.

Álagningarhlutfall útsvars var 14,52%, sem er lögbundið hámark þess. Álagningarhlutfall fasteignaskatts í A-flokki nam 0,5% sem er lögbundið hámark þess, í B-flokki nam álagningarhlutfall 1,32% sem er lögbundið hlutfall og í C-flokki nam álagningarhlutfallið 1,65% sem er lögbundið hámark þess með álagi.

Rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins samkvæmt ársreikningi A og B hluta var jákvæð um 69,4 milljónir króna, en rekstrarniðurstaða A hluta var jákvæð um 44,4 milljónir króna samkvæmt rekstrarreikningi.

DEILA