Í tilefni dagsins: Jón Sigurðsson, George Washington og allir hinir

Þessi mynd er tekin af Jóni Sigurðssyni um fimmtugt, á hátindi manndómsáranna. Ljósmyndari ókunnur.

Eftir lauslega athugun er hvorki að sjá að við Íslendingar höfum tekið okkur fyrir hendur að gera alþýðlegan né fræðilegan samanburð á Jóni Sigurðssyni og frelsishetjum annarra þjóða og má merkilegt kalla, jafnvel með ólíkindum. Má þó vera að einhver hafi komið því í verk.

Margar þjóðhetjurnar börðust fyrir frelsi landa sinna á vígvelli og síðan ekki söguna meir. Þegar því verki lauk fóru flestir þeirra heim og lögðu sig ef svo óvirðulega mætti komast að orði. En okkar maður, sem ekki var nein venjuleg þjóðhetja, heldur glæsilegur forystumaður og hversdagsmaður í senn, með báða fætur á jörðinni, hafði bæði lag og visku til að vísa mönnum leið í nánast öllum þjóðmálum sem einhverju skipta. Og nánast hvert sem litið er í íslensku þjóðlífi í dag má kenna áhrifa frá honum. En Íslendingar hafa nú aldrei verið neitt sérlega spenntir fyrir að kynna Jón Sigurðsson og ævistarf hans fyrir öðrum þjóðum og er það miður.

Við það situr eftir því sem undirritaður best veit. Væri ekki bara upplagt að kynna Jón Sigurðsson með hinu rómaða landsliði Íslands í knattspyrnu?
Segja frá því að hann barðist með söguna að vopni en ekki sverði. Og hrósa Dönum um leið fyrir að aldrei var hleypt af einu skoti í frelsisbaráttu okkar. Og handritin. Maður lifandi!

Hallgrímur Sveinsson

DEILA