Göngin hálfnuð á sprengingu númer 537

Stöðvarstjóri Mjólkárvirkjunar keyrir yfir nýju bráðabirgðabrúna yfir Hófsá.

Í viku 25 voru grafnir 87,3 m í göngunum og lengd ganganna í lok viku 25 var því 2.733,9 m sem er 51,6 % af heildarlengd ganganna. Fyrsta sprenging vikunnar var númer 537 við gröft ganganna og var jafnframt sú sprenging sem markaði þau tímamót að gröftur ganganna var þá hálfnaður. Grafið var í basalti alla vikuna sem sprakk ágætlega þó að sumar færurnar hafi ekki náð alveg fullri dýpt. Efninu úr göngunum hefur ýmist verið keyrt beint í fláafleyg eða í vegfyllingar á vegkaflanum frá munna og niður að Hófsá.

Bergstafninn sýnir vel hvað bergið er að klippast vel enda hægt að sjá útlínur eftir borholur nánast eftir öllu yfirborðinu í veggjum og lofti.

Haldið var áfram með vegskeringu suður af Mjólká og lítillega fyllt í veg til Hrafnseyrar. Alla vikuna var unnið við að mala efni í neðra burðarlag fyrir vegagerð.

 

Framvinda í viku 25

Í vikunni var bráðabrigðabrú reist yfir Hófsá og fyllt að henni. Eftir er að klára uppsetningu á vegriðum og laga veginn að brúnni. Í framhaldinu verður núverandi brú yfir Hófsá brotin niður og hafist handa við að byggja nýja tvíbreiða brú yfir Hófsá.

Engin vinna var í Dýrafirði vegna sumarfría.

Sæbjörg

bb@bb.is

DEILA