Fundu trjáleifar og kristalla í göngunum

Trjáleifar komu í ljós í hægri vegg gangnanna

Metmánuður var í greftri ganga í maí en síðast liðinn mánuð lengdust göngin um 402,5 m sem er besta mánaðarframvinda hingað til og vert að óska verktakanum til hamingju með það.

Sem fyrr hafa aðstæðar verið góðar í göngunum, þurrt og berg að springa ágættlega. Útskot F kláraðist í vikunni og vel það og er nú unnið í hefðbundnu þversniði. Í viku 22 lengdust göngin um 77,4 m og lengd þá orðin 2.471 m sem er um 46,6% af heildarlengd ganga. Í vikunni fundust ansi góðar leifar af tré í hægri vegg ganga og var þar að sjá skemmtilegar kristallamyndanir, auk þess sem stöku flögur af kopar voru áfastar þessum kristöllum.

Í vegagerð Arnarfjarðarmegin hefur efni úr göngum sem ekki er haugsett verið ekið í fláafleyga utan á fyllingar en einnig unnið við skeringar syðst á svæðinu. Þá hefur verið unnið við gerð bráðabirgðavegar við Hófsá og unnið að undirbúningi fyrir niðurrekstarplani fyrir staura við nýja brú yfir Mjólká.

Lausgröftur í forskeringu Dýrafjarðarmegin er nánast lokið og var fyrsta skot í forskeringu þann 18. maí síðast liðinn. Sprengivinna er nú komin að stöð ca. 8.453 en gangastafn er áætlaður í stöð 8.434 þ.a. það eru um 20 m eftir í sprengivinnu. Gröftur á sprengdu efni kemur fast á hæla sprengivinnu og er útgröftur vel á veg kominn en efni verður að hluta til skilið eftir í botninum þar til búið er að styrkja efri hluta bergveggja þar sem þarf áður en efni verður að fullu grafið út.

Sæbjörg

sabjorg@gmail.com

Niðurrekstrarplan við Mjólká. Hér mun nýja brúin standa
Bráðabirgðavegur við Hófsá
Forskering í Dýrafirði
Framvinda Dýrafjarðargangna
DEILA