Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn mynda meirihluta í Ísafjarðarbæ

Ísafjörður

Fulltrúar Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar hafa komist að samkomulagi um að starfa saman í meirihluta bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar á komandi kjörtímabili. Málefnasamningur flokkanna verður lagður fyrir stjórnir félaganna í þessari viku til samþykktar og stefnt er að því að boða til fyrsta fundar í nýrri bæjarstjórn 12. júní næst komandi þar sem kosið verður í nefndir bæjarins.

Auglýst verður eftir bæjarstjóra á næstu dögum. Sú nýbreytni verður viðhöfð að minnihlutanum verður boðin formennska í nefndum.

F.h. Framsóknarflokksins í Ísafjarðarbæ, Marzellíus Sveinbjörnsson,oddviti

F.h. Sjálfstæðisflokksins í Ísafjarðarbæ, Daníel Jakobsson, oddviti.

DEILA