Forseti Íslands verður á þjóðhátíðarhöldum á Hrafnseyri 16. júní

Guðni Th. Forseti Íslands, kemur á Hrafnseyri á laugardag.

Hátíðarhöld í tilefni þjóðhátíðardagsins á Hrafnseyri verða með óvenjulegu og spennandi sniði að þessu sinni. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson tekur þátt í þjóðhátíðardagskránni á Hrafnseyri, heldur hátíðarræðu og fylgist með leik Íslands og Argentínu í stóru hátíðartjaldi ásamt gestum.

Af óviðráðanlegum orsökum verða þjóðhátíðardagskráin á Hrafnseyri, sem er venjulega á afmælisdegi Jóns Sigurðssonar þann 17. júní, færð fram um einn dag, eða til laugardagsins 16. júní. Hátíðarhöldin hefjast kl. 11:00 um morguninn með guðþjónustu. Að henni lokinni mun forseti Íslands. herra Guðni Th. Jóhannesson flytja hátíðarræðu.

Á eftir ræðu forseta Íslands, verður frumflutt tónverkið Blakta eftir ísfirska tónskáldið Halldór Smárason. Síðan mun sr. Geir Waage í Reykholti segja frá æskuminningum sínum frá Hrafnseyri.

Eins og kunnugt er fer fyrsti leikur Íslands í heimsmeistarakeppninni fram þennan dag og hefst hann kl. 13. Komið verður upp glæsilegu hátíðartjaldi á Hrafnseyri ásamt stórum skjám og góðri aðstöðu þar sem forseti og gestir fylgjast með leiknum.

Dagskránni lýkur svo með útskriftarhátíð nemenda frá Háskólasetri Vestfjarða. Súpa og kaffiveitingar eru til sölu á meðan hátíð stendur. Allir hjartanlega velkomnir og eru Vestfirðingar og aðrir hvattir til þess að mæta.

Staðarhaldarinn á Hrafnseyri.

Afmælisnefnd aldarafmælis sjálfstæðis og fullveldis Íslands 2018.

Prófessorsembætti Jóns Sigurðssonar.

Sæbjörg

sfg@bb.is

DEILA