Alvarlegt umferðarslys í Hestfirði

Lögreglan á Vestfjörðum hefur birt eftirfarandi tilkynningu: Klukkan 15:53 í dag barst Neyðarlínunni tilkynning um alvarlegt umferðarslys í Hestfirði í Ísafjarðardjúpi. En þar valt sendibifreið. Lögreglumenn, sjúkraflutningamenn, slökkviliðsmenn og björgunarsveitarfólk fór þá þegar á vettvang. Auk ökumanns var einn farþegi í bifreiðinni. Vegna alvarleika slyssins var óskað eftir aðstoð þyrlu LHG sem flutti annan aðilann á sjúkrahús í Reykjavík. Hinn lést af völdum áverka. Báðir aðilarnir eru íslenskir og hefur fjölskyldum þeirra verið tilkynnt um slysið.

Veginum var lokað meðan viðbragðsaðilar voru þar að störfum. Vegurinn verður opnaður á næstu mínútum.

Rannsókn á tildrögum slyssins er í höndum lögreglunnar á Vestfjörðum og rannsóknarnefndar samgönguslysa. Ekki er tímabært að gefa frekari upplýsingar um atvikið.

Sæbjörg
bb@bb.is

DEILA