Vika 20 við gerð Dýrafjarðarganga

Lengd ganganna í lok viku 20 var 2.307,6 m sem er 43,5 % af heildarlengd ganganna, framvinda vikunnar var 100,6 m, alls voru sprengdar 20 færur í vikunni.

Aðstæður í göngunum voru mjög góðar í vikunni. Rautt setlag sem hefur verið á stafninum hækkaði hratt upp stafninn og hvarf upp í þekjuna. Lagið sem er á stafninum núna er massíft stórstuðlað ólivín basalt, það er smá blöðruband efst undir karganum en annars heillegt og gott. Eftir að setlagið hreinsaði sig upp hefur efni úr göngunum verið keyrt á efnislager vestan við verkstæði. Fram að því var efni ekið í vegfyllingar í skeringu neðan við vinnubúðir. Einnig var unnið við að fjarlægja lífrænan jarðveg úr skeringu frá 600 – 500, því efni var ekið í fláa neðan við Mjólkárvirkjun.

Á sunnudag voru settir inn 3 mælipunktar til að mæla aflögun, tveir sitt hvoru megin við útskot E og einn um 10 m aftan við stafn.

Unnið var á fullu í forskeringum í Dýrafirði, þar var byrjað að sprengja í vikunni.

 

DEILA