Val þitt skiptir máli

Ólafur Ingi Guðmundsson.

Laugardaginn 26. maí fara fram sveitarstjórnarkosningar um land allt. Í flestum sveitarfélögum eru framboðslistar að kynna sín kosningamál og áherslur fyrir næstu fjögur ár. Í því samhengi er nauðsynlegt að huga að því að meta fyrir hvað þessi framboð standa, hver eru þeirra gildi og sýn á samfélagið sitt. Á hverju byggja stefnuskrár framboðanna sem liggja til grundvallar þeirra framtíðarsýn á sitt samfélag.

Ég hvet kjósendur til að kynna sér framboðin í sínu nágrenni og velta því fyrir sér hverjum þeir treysta til að fara með stjórn mála í sínu nærumhverfi. Þar skiptir ekki máli hvort um sé að ræða ákveðinn flokk eða framboð sem byggir á krafti íbúanna sjálfra og vilja láta rödd sína heyrast heldur þau gildi sem þau standa fyrir.

Félagshyggja stendur fyrir raunverulegum gildum eins og samkennd og velferð fyrir alla. Jöfn tækifæri og jafn réttur fólks innan samfélagsins er einn af hornsteinum þess þjóðfélags sem við lifum öll saman í. Öflugt lýðræði og opin stjórnsýsla þar sem íbúar hafa aðkomu að málefnum síns samfélags skiptir okkur öll máli.

Í komandi sveitarstjórnarkosningum fær hvert og eitt okkar tækifæri til að hafa áhrif á okkar nærumhverfi næstu fjögur ár. Það skiptir máli að í sveitarstjórnum sé fólk sem aðhyllist jafnaðarstefnu og félagshyggju. Fólk sem þekkir sín gildi um frelsi og jafnrétti og vill vinna með samborgurum sínum til að vinna að þessum gildum í samfélaginu.

Ég hvet ykkur kjósendur til að skoða stefnuskrár framboðanna í ykkar sveitarfélagi og fyrir hvaða gildi þau standa. Framboð í anda jafnaðarstefnu og félagshyggju standa ykkur til boða til að vinna að málum í ykkar þágu næstu fjögur ár.

Það skiptir máli hverjir eru í forsvari fyrir þitt sveitarfélag. Nýttu atkvæðisrétt þinn á kjördag.

Ólafur Ingi Guðmundsson

DEILA