Tómas tungulipri

Birna Lárusdóttir.

Nú rétt fyrir sveitarstjórnarkosningar hefur hitnað verulega í kolunum í umræðum um Hvalárvirkjun í Ófeigsfirði. Sannleiksástin er ekki alltaf í fyrirrúmi hjá öllum sem tjá sig um verkefnið. Þar sem málið er VesturVerki skylt, sem framkvæmdaaðila virkjunarinnar, erum við knúin til að bregðast við.

Í aðsendri grein í Fréttablaðinu, visir.is og hér á bb.is í vikunni fer Tómas Guðbjartsson enn á stúfana í baráttu sinni gegn verkefninu. Tómas kemur einnig í ítarlegt viðtal í útvarpsþáttinn „Í bítið“ á Bylgjunni á þriðjudag þar sem hann fylgir grein sinn eftir og fer mikinn.

Svo margt í málflutningi Tómasar þarfnast leiðréttingar en hér verður aðeins tæpt á örlitlu. Ekki verður fjallað um ótrúlegar rangfærslur hans um raforkumál almennt og umhverfisáhrif virkjunarinnar né fölsuðu fossamyndina, sem hann birtir með grein sinni. Það er efni í aðra grein.

Sár yfir fundarsókn

Tómas ber sig aumlega yfir því að vestfirskir ráðamenn hafi ekki sótt fyrirlestur og myndasýningu hans á Ísafirði fyrir skömmu. Hins vegar hafi fjölmenni sótt opinn fund um raforkumál á Vestfjörðum, sem haldinn var af VesturVerki viku síðar. Dylgjar Tómas um að samhengi hljóti að vera þar á milli.

Hið rétta er að fyrirlestur Tómasar var illa auglýstur hér vestra og fréttu margir Ísfirðingar af honum með dagsfyrirvara. Engir forsvarsmenn sveitarfélaga fengu boð á fyrirlesturinn og enn síður við hjá VesturVerki. Einnig var tímsetningin óheppileg enda voru margir bæjarbúar að undirbúa hina árlegu Fossavatnsgöngu, risastórt samfélagsverkefni hér á Ísafirði. Fundur VesturVerks var hins vegar ágætlega auglýstur hér heima og vel sóttur fyrir vikið.

Lítið gert úr Vestfirðingum og vilja þeirra

Því miður fellur Tómas í þá freistni að gera lítið úr Vestfirðingum og áherslum þeirra á uppbyggingu í fjórðungnum. Hann gefur í skyn að valdamiklir aðilar hljóti að stýra umræðunni, orkurisar og ámóta. Starfsmenn VesturVerks eru tveir og hjá HS Orku, meirihlutaeiganda VesturVerks, eru 60 starfsmenn. Þessi fyrirtæki standa seint og illa undir nafnbótinni „orkurisi“. Eftir stendur að Tómas álítur Vestfirðinga ekki færa um að leggja sjálfstætt mat á það hvað er þeim fyrir bestu og með hvaða hætti sé skynsamlegast að nýta náttúruna, sem þeir kjósa að búa í sátt við.

Ekki þarf að leita lengra en til Orkubús Vestfjarða, Landsnets, Orkustofnunar og Fjórðungssambands Vestfirðinga til að sjá að samhljómur er um mikilvægi Hvalárvirkjunar fyrir Vestfirði í heild ásamt þeim tengingum sem nauðsynlegar eru. Rannsóknastofnun Háskólans á Akureyri kemst að sömu niðurstöðu í mati sínu á samfélagsáhrifum virkjunarinnar sem unnið var fyrir VesturVerk nýverið.

Aldargömul hugmynd til hagsbóta fyrir Vestfirði

Fyrstu hugmyndir um virkjun Hvalár í Ófeigsfirði eru í það minnsta aldargamlar. Fyrir röskum áratug fór verkefnið að verða áhugavert. Einstaklingar á Ísafirði drógu vagninn, sömdu við landeigendur og fengu síðan nýja hluthafa til liðs við sig þegar verkefninu óx fiskur um hrygg. Þetta eru stórhuga heimamenn, sem unna náttúru Vestfjarða ekkert síður en aðrir landsmenn. Þeir komu Hvalárvirkjun á kortið í þeirri bjargföstu trú að hún yrði til hagsbóta fyrir Vestfirði og landið allt. Rétt er að halda þessu til haga.

Birna Lárusdóttir,
upplýsingafulltrúi VesturVerks á Ísafirði

DEILA