Ný stjórn hjá Skíðafélagi Ísfirðinga

Skíðasvæðið í Tungudal.

Aðalfundur Skíðafélags Ísfirðinga var haldinn þann 22. maí. Þar var farið yfir skýrslu stjórnar og reikninga félagsins og ennfremur kosið í nýja stjórn. Ásgerður Þorleifsdóttir og Jóhann Bæring Pálmason gáfu ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu og Hólmfríður Vala gaf ekki kost á sér í formannssætið aftur. Díana Jóhannsdóttir var kosin ný inn í stjórnina sem og Helgi Karl Guðmundsson. Stjórnin er því skipuð Díönu Jóhannsdóttur sem er formaður, Sirrý Sigurðardóttur sem er gjaldkeri, Sif Huld Albertsdóttur, Hólmfríði Völu Svavarsdóttur og Helga Karli Guðmundssyni. Kosnir voru tveir varamenn í stjórn og voru það Jóhanna Oddsdóttir og Guðfinna Guðmundsdóttir.

Einnig var kosið í nefndir og eru þau Díana Jóhannsdóttir, Ásta María Sverrisdóttir, Halldór Karl Valsson, Atli Freyr Rúnarsson og Guðfinna Guðmundsdóttir í alpanefnd.

Í brettanefnd eru: Helgi Karl Guðmundsson, Elín Hólm, Elvar Ari Hagalínsson, og Bergsteinn Snær Bjarkason.

Í göngunefnd eru svo Hólmfríður Vala Svavarsdóttir, Guðmundur Sigurvin Bjarnason, Hákona Hermannsson, Páll Janus Hilmarsson og Gunnar Bjarni Guðmundsson.

Samkvæmt lögum félagsins skal stjórn koma með tillögu að félagsgjaldi sem samþykkt er á aðalfundi. Boðið er upp á svokallað fjölskylduárgjald þar sem allir meðlimir sömu fjölskyldu eru skráðir félagar. Var gjald upp á 3.000 kr. samþykkt á fundinum.

Stjórn þakkar fráfarandi stjórnarmönnum vinnu sína.

Sæbjörg

sabjorg@gmail.com

DEILA