Meirihlutinn í Ísafjarðarbæ féll

Stjórnsýsluhúsið á Ísafirði.

Meirihlutinn í Ísafjarðarbæ féll í sveitarstjórnarkosningunum síðastliðna helgi.

Samkvæmt frétt á vef Rúv tapaði Í-listinn einu prósentustigi frá síðustu kosningum, sem varð til þess að flokkurinn fær nú fjóra í stað fimm bæjarfulltrúa. Sjálfstæðismenn héldu þremur fulltrúum á meðan framsóknarmenn fengu tvo og bæta þar við sig einum frá því í síðustu kosningum.

Margrét Lilja

milla@bb.is

DEILA