Lokun Breiðadals- og Botnsheiðarganga

Frá og með 6. maí og næstu vikur áfram verða Breiðadals- og Botnsheiðargöng lokuð frá afleggjaranum til Súgandafjarðar og áfram yfir í Önundarfjörð. Lokunin var auglýst með tveimur upplýsingaskiltum við gangnamunnana og svo á heimasíðu Vegagerðarinnar. En hvað er verið að gera? „Það er verið að bora fyrir boltum svo það verði hægt að malbika hluta af göngunum,“ segir Guðmundur Rafn Kristjánsson, deildarstjóri jarðgangadeildar hjá Vegagerðinni á Ísafirði.

„Við fengum bor frá Vaðlaheiðargöngum og hann virkar svo vel að við verðum búnir að bora í þessari viku, en ætluðum okkur tvær vikur í verkið. Svo munu Vestfirskir Verktakar setja upp svokallað skúmm inni í göngunum, eins og er þar fyrir, en þeir komast ekki í það verk alveg strax. Þetta er um kílómeterskafli sem er verið að vinna á og það er í raun verið að koma í veg fyrir að það komist vatn út á akbrautina.“

Mörgum sem búa Önundarfjarðarmegin við göngin fýsir að vita hvernig verði hægt að komast á sjúkrahús ef slys ber að höndum. Guðmundur sagði í samtali við BB að það hefði að sjálfsögðu verið það fyrsta sem Vegagerðin hugsaði fyrir. „Bæði lögregla og slökkvilið eru með símanúmer hjá mönnum inni í göngunum og ef eitthvað kemur upp á er ekkert vandamál að komast í gegn og yfir á Ísafjörð.“

Göngin verða lokuð frá kl. 22 á hverju kvöldi og fram til 7 á morgnana. Opnað er fyrir umferð í 10 mínútur á miðnætti hvert kvöld en þetta er gert til að ná sem lengstum vinnutíma hverja nótt og stytta þannig heildartímann sem fer í viðgerðirnar. „Afköstin verða engin ef menn ætla að vinna með umferð á sér. En auðvitað er þetta ekki fullkomið,“ segir Guðmundur að lokum.

Sæbjörg

sabjorg@gmail.com

DEILA