Framlag – nýtt framboð í Bolungarvík

Nýtt framboð, Framlag, mun bjóða fram lista undir listabókstafnum Y í komandi sveitakstjórnarkosningum í Bolungarvík. Í tilkynningu frá listanum kemur fram að Framlag leggi til hugmyndafræði sem stefnir að því að koma á fót nýju stjórnkerfi þar sem bæjarbúar taka virkari þátt í stjórnun og ákvarðanatöku bæjarins. Ekki er um að ræða stjórnmálaflokk eða eiginlegan framboðslista, heldur hóp fólks sem vill leggja sig fram við að finna leiðir til að auka sjálfræði bæjarbúa og aðkomu þeirra að bæjarmálum. Framlag leggst gegn flokkapólitík og persónukjöri, en hvetur þess í stað til aukinnar samvinnu, almennrar meðvitundar um bæjarmálin og einingar innan bæjarfélagsins.
Hægt er að leasa nánar um hugmyndafræði Framlags á Facebook síðu framboðsins.

Hér má sjá lista flokksins:

1. Jón Hafþór Marteinsson
2. Nikólína Beck Þorvaldsdóttir
3. Bjarni Pétursson
4. Linda Dröfn Gunnarsdóttir
5. Auðun Jóhann Elvarsson
6. Kristinn Orri Hjaltason
7. Hálfdán Guðröðsson
8. Jón Marteinn Guðröðsson

Margrét Lilja

milla@bb.is

DEILA