Fjármál við starfslok – fræðslufundur um lífeyrismál

Íslandsbanki býður Ísfirðingum og öðrum Vestfirðingum á fræðslufund um það sem mikilvægast er að hafa í huga þegar styttist í starfslok.
Rætt verður um:
— Helstu skerðingar og greiðslur Tryggingastofnunar
— Hvenær og hvernig er best að taka út lífeyri og séreign
— Hvaða breytingar voru gerðar um áramótin
Fundurinn verður haldinn í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði í dag kl. 17:30. Íbúar á aldrinum 60–70 ára eru sérstaklega hvattir til að mæta.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

 

DEILA