Vísir hf undirritar samning við Skaginn 3X

Frá undirritun samnings félaganna í húsi sjávarklasans á dögunum. F.v. Óskar Óskarsson Marel, Pétur Pálsson Vísi, Einar Kristinsson Navís, Kjartan Viðarsson Vísi og Ragnar A. Guðmundsson Skaginn3x.

Skaginn 3X hefur gert samning við Vísi hf um búnað í skip fyrirtækisins. Skipið sem ber nafnið Sighvatur GK er í umtalsverðum breytingum í skipasmíðastöð í Póllandi um þessar mundir. Sighvatur GK er svo væntanlegur til Ísafjarðar um miðjan júní þar sem Skaginn 3X mun sjá um uppsetningu á búnaði um borð í skipinu.

Um er að ræða Rotex skipalausn frá Skaginn 3X og flokkunarbúnað frá Marel.

Pétur Pálsson hjá Vísir hf segist afar ánægður með lendinguna „Við lögðum upp með að búa til lausn sem tryggir gæði og flokkun hráefnis út á sjó. Við höfum átt gott og farsælt samstarf með báðum þessum fyrirtækjum og viljum við halda því áfram.

Skaginn 3X og Marel eru í heimsklassa á sínu sviði og það er afar ánægjuleg lending að uppsetning fari fram á Ísafirði við verksmiðjudyr Skaginn 3X“ Segir Pétur.

DEILA