Máttur meyja og manna staðfestir framboðslista í Bolungarvík

Bolungarvík. Mynd: SJS.

Máttur meyja og manna mun bjóða fram lista undir listabókstafnum K í komandi sveitastjórnakosningum í Bolungarvík. Þetta kemur fram í tilkynningu sem framboð MMM, Mátts meyja og mann, sendi frá sér. Sérstaklega er tekið fram í tilkynningunni að á stefnuskrá MMM fyrir síðustu kosningar hafi verið lagt upp með að auglýst væri eftir framkvæmdastjóra bæjarins. „Það var gert á kjörtímabilinu og fögnuðum við því. Jón Páll hefur verið farsæll í því starfi og því viljum við njóta hans krafta áfram.“ Magnús Ingi Jónsson, sem vermir 3. sæti listans, staðfesti í samtali við blaðamann BB að Jón Páll Hreinsson, bæjarstjóri Bolungarvíkur, væri bæjarstjóraefni listans.

1. Sigríður Hulda Guðbjörnsdóttir, Deildarstjóri
2. Hjörtur Traustason, Rafvirki og tónlistarmaður
3. Magnús Ingi Jónsson, Ferðamálafræðingur
4. Helga Jónsdóttir, Grunnskólakennari
5. Margrét Jómundsdóttir, Sjúkraliðanemi
6. Halldór Guðjón Jóhannsson, Verslunarstjóri
7. Monika Mazur, Stuðningsfulltrúi
8. Hugrún Diljá Þorgeirsdóttir, Launafulltrúi
9. Hörður Snorrason, Sjómaður
10. Sigurður Guðmundur Sverrisson, Verksjóri
11. Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir, Framkvæmdastjóri
12. Gunnar Hallsson, Forstöðumaður
13. Guðrún Stella Gissurardóttir, Forstöðumaður
14. Matthildur Guðmundsdóttir, Póstafgreiðslumaður og bankagjaldkeri

Margrét Lilja

milla@bb.is

DEILA