Framboðslisti sjálfstæðismanna og óháðra samþykktur í Bolungarvík

Bolungarvík.

Framboðslisti sjálfstæðismanna og óháðra í Bolungarvík vegna komandi sveitarstjórnarkosninga hefur verið samþykktur. Listinn samanstendur annarsvegar af fólki úr Sjálfstæðisflokknum og hins vegar af einstaklingum sem starfa utan stjórnmálaflokka.

Í fyrsta sæti listans er Baldur Smári Einarsson, viðskiptafræðingur, önnur er Guðbjörg Stefanía Hafþórsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri, þriðja er Katrín Pálsdóttir, viðskiptastjóri, fjórði er Kristján Jón Guðmundsson, rekstrarstjóri, og í fimmta sæti listans er Birgir Örn Birgisson, rafvirki.

Eins og fram hefur komið áður stefna sjálfstæðismenn og óháðir að öflugu framboði og hafa hug á að endurráða núverandi bæjarstjóra, Jón Pál Hreinsson.

Framboðslisti „Sjálfstæðismanna og óháðra“ í Bolungarvík er skipaður eftirtöldum einstaklingum:

1. Baldur Smári Einarsson, viðskiptafræðingur
2. Guðbjörg Stefanía Hafþórsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri
3. Katrín Pálsdóttir, viðskiptastjóri
4. Kristján Jón Guðmundsson, rekstrarstjóri
5. Birgir Örn Birgisson, rafvirki
6. Kristín Ósk Jónsdóttir, sálfræðinemi
7. Helga Svandís Helgadóttir, kennari
8. Einar Guðmundsson, skipstjóri
9. Oddur Andri Thomasson Ahrens, rekstrarstjóri
10. Viktoría Kr. Guðbjartsdóttir, fjármála- og skrifstofustjóri
11. Jóhanna Ósk Halldórsdóttir, viðskiptafræðingur
12. Bjarki Einarsson, sjómaður
13. Hulda Birna Albertsdóttir, sérfræðingur
14. Jón Guðni Pétursson, skipstjóri

Margrét Lilja

milla@bb.is

DEILA