Fræðslumiðstöð Vestfjarða hlaut Virðisaukann

Stjórnsýsluhúsið á Ísafirði.
 Virðisaukinn, hvatningarverðlaun atvinnu- og menningarmálanefndar Ísafjarðarbæjar, voru afhent nú seinnipartinn á fundi bæjarstjórnar.
Verðlaunin í ár hlýtur Fræðslumiðstöð Vestfjarða. Samkvæmt rökstuðningi nefndarinnar, sem birtur var í tilkynningu frá Ísafjarðarbæ, kemur fram að markmið Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða sé að auðvelda íbúum á Vestfjörðum símenntun og þátttöku í námi af ýmsu tagi. Verðlaunin eru ætluð sem hvatning til þeirra sem sýna frumkvæði í málum er lúta að sveitarfélaginu og samborgurum.

Rökstuðning nefndarinnar fyrir valinu má sjá hér:

„Viðurkenningu og hvatningarverðlaun Atvinnu- og menningamálanefndar, og þar með farandgripinn Virðisaukann, árið 2017, hlýtur Fræðslumiðstöð Vestfjarða. Markmið Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða er að auðvelda íbúum á Vestfjörðum símenntun og þátttöku í námi af ýmsu tagi. Fræðslumiðstöð Vestfjarða hefur með námsframboði sínu, nýjum samstarfsamningum við starfsmenntasjóði verkalýðsfélaganna og tengslum við atvinnulífið, m.a. með greiningu fræðsluþarfa hjá fyrirtækjum og stofnunum á svæðinu, lagt sitt að mörkum til að auka fjölbreytni í atvinnu og menntun í sveitarfélaginu.
Verðlaunin eru ætluð sem hvatning til þeirra sem sýna frumkvæði í málum er lúta að sveitarfélaginu og samborgurunum. Með afhendingu þeirra er einkum tekið mið af framlagi við að auka fjölbreytni í atvinnu, menntun eða afþreyingu, að auka sýnileika bæjarfélagsins á landsvísu, sérstaks árangurs, framtaks á sviði þróunar vöru, þjónustu eða markaðssetningar.“

Margrét Lilja
milla@bb.is
DEILA